Smartlagnir ehf. er pípulagningafyrirtæki sem byggir á fagmennsku, reynslu, fræðslu og framtíðarsýn. Fyrirtækið var stofnað með það að markmiði að veita vandaða, örugga og nútímalega þjónustu á sviði pípulagna, þar sem gæði og traust eru höfð að leiðarljósi.
Nikolai Sófus Berthelsen, pípulagningameistari, hóf nám sitt í pípulögnum við Iðnskólann í Hafnarfirði haustið 2012. Vorið 2013 fór hann á námssamning hjá Iðnmeistara, þar sem hann stundaði nám samhliða vinnu og lauk sveinsprófi í pípulögnum vorið 2018.
Árið 2021 hóf Nikolai nám til meistararéttinda og lauk meistaranámi vorið 2025. Í beinu framhaldi var sótt um löggildingu hjá HMS, og vorið 2026 fékk Smartlagnir ehf. samþykkta gæðahandbók.
Í febrúar 2026 hófu Nikolai Sófus Berthelsen og Almar Reginn Björnsson formlegt samstarf innan Smartlagnir ehf. Almar hefur starfað við pípulagnir í fjölda ára og býr yfir dýrmætri reynslu úr greininni. Vorið 2025 fór hann í raunfærnimat hjá IÐUNNI fræðslusetri og er í framhaldinu að fara á námssamning hjá Smartlögnum ehf., undir leiðsögn Nikolai.
Gildi okkar
Það sem einkennir Smartlagnir ehf. er:
Fræðsla. Nýjungar. Samstaða. Öryggi.
Við leggjum mikla áherslu á að okkar fólk sé framsækið, bæði í menntun og endurmenntun. Við hvetjum til þátttöku í námskeiðum, fræðslu og kynningu á nýjungum á markaði, sérstaklega þeim sem tengjast pípulögnum, tæknilausnum og byggingariðnaði.
Við trúum því að aukin þekking skili sér í betri vinnubrögðum, meiri fagmennsku og sterkari öryggisvitund — bæði í starfi og daglegu lífi.
Markmið Smartlagna ehf. er að veita þjónustu sem sameinar reynslu, traust og nútímalegar lausnir fyrir heimili, fyrirtæki og framtíðina