Vetrarskoðun Er húsið tilbúið fyrir veturinn? Við förum yfir ofna, sigti og útikrana – fast verð. Vetrarskoðun – reiknaðu verðið Reiknaðu verðið

smartlagnir@smartlagnir.is

Sími 888 8094

Smartlagnir ehf. leggur áherslu á að fara vel með þær upplýsingar sem viðskiptavinir treysta okkur fyrir. Hér er útskýrt hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna og hvaða réttindi þú átt.

Ábyrgðaraðili

Smartlagnir ehf., kt. 540125-1040, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnast á þessum vef. Netfang: smartlagnir@smartlagnir.is. Sími: 888 8094.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn söfnum við eftirfarandi:

  • Nafni þínu
  • Símanúmeri
  • Netfangi, ef þú gefur það upp
  • Staðsetningu verks, ef þú gefur hana upp
  • Lýsingu þinni á erindinu
  • IP-tölu og tímasetningu, eingöngu til að verjast misnotkun á forminu

Í hvaða tilgangi

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að hafa samband við þig vegna erindisins, meta verkið og gefa verðhugmynd, og halda utan um verkið ef af því verður. Við seljum aldrei upplýsingar þínar og notum þær ekki í markaðssetningu.

Heimild til vinnslu

Vinnslan byggir á samþykki þínu þegar þú sendir fyrirspurnina, og á nauðsyn þess að gera ráðstafanir að þinni beiðni áður en samningur er gerður.

Sjálfvirk flokkun fyrirspurna

Til að við getum brugðist hratt við, sérstaklega þegar um bráðatilvik er að ræða, er lýsing þín send til Anthropic sem útbýr stutta samantekt fyrir okkur. Anthropic starfar sem vinnsluaðili fyrir okkar hönd og notar upplýsingarnar ekki til að þjálfa líkön.

Leiðbeiningar sem þú færð um að takmarka tjón koma aldrei frá gervigreind. Þær eru fastar í kerfinu og yfirfarnar af löggiltum pípulagningameistara.

Hverjir hafa aðgang

  • Starfsfólk Smartlagna ehf.
  • Astra (astra.is), sem hýsir vefinn
  • Google (Google Workspace fyrir tölvupóst, og Google Analytics ef þú samþykkir vafrakökur)
  • Anthropic, eins og lýst er hér að ofan

Varðveislutími

Fyrirspurnum sem ekki leiða til verks er eytt innan tólf mánaða.

Þegar verk er unnið höldum við eftir stuttri samantekt um það: hvað var gert, hvar og hvenær. Þetta gerum við í viðhaldstilgangi, svo við þekkjum sögu lagnanna ef kallað er á okkur aftur síðar, hvort sem er vegna bilunar, endurnýjunar eða eftirfylgni. Það kemur viðskiptavinum beinlínis til góða að við vitum hvað liggur í húsinu.

Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að öllum upplýsingum um þig verði eytt, líka samantektinni, og við verðum við því án vandkvæða. Sendu einfaldlega beiðni á smartlagnir@smartlagnir.is.

Tvennt er þó rétt að hafa í huga. Okkur ber lagaleg skylda til að varðveita bókhaldsgögn, svo sem reikninga, í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum, og þeim getum við ekki eytt fyrr en að þeim tíma liðnum. Og sé samantektinni eytt höfum við ekki lengur sögu verksins ef þú kallar á okkur aftur.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, fá rangar upplýsingar leiðréttar, fá upplýsingum eytt, andmæla vinnslu eða takmarka hana, og afturkalla samþykki þitt hvenær sem er.

Sendu beiðni á smartlagnir@smartlagnir.is og við bregðumst við eins fljótt og hægt er, í síðasta lagi innan mánaðar. Beiðni um eyðingu er okkur engin fyrirhöfn og við spyrjum ekki um ástæður.

Vafrakökur

Þegar þú kemur á vefinn í fyrsta sinn spyrjum við hvort þú samþykkir vafrakökur. Ekkert er sett nema þú smellir á „Samþykkja“.

  • Nauðsynleg kaka (sl_samthykki): geymir val þitt, „já“ eða „nei“, í 6 mánuði svo við spyrjum ekki aftur í hverri heimsókn.
  • Google Analytics (_ga, _ga_*): aðeins ef þú samþykkir. Google Analytics safnar upplýsingum um hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gestir koma og hvers konar tæki þeir nota. Kökurnar gilda í allt að 2 ár. Google Ireland Ltd. vinnur upplýsingarnar fyrir okkur sem vinnsluaðili, og IP-tölur eru ekki geymdar. Við notum hvorki auglýsingakökur né deilum gögnunum til auglýsinga. Heimild: samþykki þitt (a-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).

Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með hlekknum Vafrakökur, sem er líka neðst á hverri síðu. Ef þú dregur samþykki til baka eyðum við Google Analytics kökunum úr vafranum þínum.

Heimsóknatölfræði án vafrakaka. Óháð vali þínu teljum við heimsóknir á vefinn til að sjá hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan fólk kemur. Talningin fer eingöngu fram á okkar eigin vefþjóni, án vafrakaka og án þjónustu þriðja aðila eins og Google. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru geymdar og IP-tölur eru ekki vistaðar; aðeins samanlagðar tölur yfir fjölda heimsókna og skoðaðar síður.

Kvartanir

Teljir þú að við förum ekki rétt með upplýsingar þínar getur þú beint kvörtun til Persónuverndar, personuvernd.is.

Breytingar á stefnunni

Stefnan var síðast uppfærð 28. september 2026.