Áður en frostið kemur förum við yfir lagnirnar í húsinu þínu. Við losum pinna í ofnum, lofttæmum, hreinsum sigti og búum útikrana undir veturinn. Fast verð og skrifleg skýrsla í lokin.
Af hverju á haustin?
- Pinnar í ofnlokum festast yfir sumarið. Þegar ofnarnir hafa staðið lokaðir í marga mánuði festist pinninn oft niðri – og ofninn hitnar ekki þegar kólnar.
- Loft í ofnum veldur köldum ofnum, niði og ójöfnum hita.
- Óhreinindi og kalk í sigtum minnka rennslið í krönum, sturtum og hitakerfinu.
- Útikranar og lagnir í köldum rýmum geta frosið og sprungið ef ekki er gengið frá þeim.
Hvað er innifalið
Ofnar
- Pinnar í öllum ofnlokum losaðir og ofnastillar settir rétt á aftur
- Allir ofnar lofttæmdir
- Athugað að allir ofnar hitni og að ekki leki við loka og tengingar
Inntak og hitakerfi
- Þrýstingur og hitastig á inntaki mælt og skráð
- Sigti á inntaki hitaveitu og kalda vatns yfirfarin í samstarfi við veitufélagið – ef hreinsa þarf köllum við veituna til, enda á hún búnaðinn
- Þrýstijafnari, öryggisloki og lokar á inntaksgrind skoðaðir
- Snjóbræðsla skoðuð, ef hún er til staðar
Baðherbergi og eldhús
- Sigti í blöndunartækjum, sturtum og sturtuhausum hreinsuð
- Hitastig heits vatns mælt við krana
- Lekar undir vöskum, stopplokar, niðurföll og salerni skoðuð
Frost
- Lokað fyrir útikrana og þeir tæmdir fyrir veturinn
- Lagnir í bílskúr, kjallara og öðrum óupphituðum rýmum skoðaðar
Þú færð skýrslu
Eftir yfirferðina færð þú skýrslu um allt sem var skoðað, með athugasemdum og tillögum ef eitthvað þarf að laga. Við sýnum þér líka hvar aðallokarnir eru, svo þú vitir hvert á að fara ef eitthvað kemur upp. Engar viðgerðir eru gerðar án þíns samþykkis.
Yfirferðina framkvæma pípulagningamenn Smartlagna undir ábyrgð löggilts pípulagningameistara.
Reiknaðu verðið
Fast verð fyrir alla yfirferðina. Verðið ræðst af stærð hússins og fjölda baðherbergja.
170 kr. á fermetra, þó aldrei minna en 23.900 kr. (dugar fyrir allt að 140 fm), og 6.900 kr. fyrir hvert baðherbergi eða snyrtingu. Öll verð eru með VSK. Enginn aksturskostnaður á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu – utan þess getur akstur bæst við. Efni sem þarf að skipta um er rukkað sérstaklega – og aðeins með þínu samþykki.
Bókaðu vetrarskoðun
Við höfum samband og finnum tíma sem hentar.