Smartlagnir ehf. tekur að sér allar almennar pípulagnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við erum með aðsetur í Reykjanesbæ og vinnum verk um allt land — með góðum kjörum hvert sem farið er. Löggiltur pípulagningameistari er í forsvari fyrir öll verk sem við tökum að okkur.
Vetrarskoðun
Yfirferð á lögnum áður en frostið kemur: pinnar í ofnum losaðir, ofnar lofttæmdir, sigti hreinsuð og útikranar tæmdir. Fast verð eftir stærð hússins og skrifleg skýrsla. Reiknaðu verðið og bókaðu →
Neysluvatnslagnir
Lagnir fyrir kalt og heitt vatn í nýbyggingum og eldra húsnæði. Við sjáum um nýlagnir, endurnýjun á eldri lögnum og tengingar við inntök.
Hitalagnir og gólfhiti
Ofnakerfi, gólfhiti og tengingar við hitaveitu. Við setjum upp ný kerfi, endurnýjum eldri lagnir og stillum kerfin svo þau skili sér rétt.
Frárennslislagnir
Skólp- og frárennslislagnir, stíflulosun og endurnýjun á frárennsli, bæði innanhúss og utan.
Hreinlætistæki
Uppsetning og skipti á salernum, vöskum, sturtum, baðkörum og blöndunartækjum — hvort sem um er að ræða staka endurnýjun eða heilt baðherbergi.
Snjóbræðsla
Snjóbræðslukerfi í innkeyrslur, stéttar, tröppur og plön. Við leggjum kerfið, tengjum það og stillum.
Sundlaugakerfi
Lagnir og búnaður fyrir sundlaugar og heita potta — uppsetning, tengingar og viðhald.
Bilanaþjónusta og lekaleit
Útköll vegna leka, stíflna og bilana. Við finnum upptökin og gerum við.
Nýbyggingar
Allar lagnir í nýbyggingum, frá grunni til frágangs. Við vinnum jafnt með verktökum og einstaklingum sem eru að byggja.
Endurnýjun eldri lagna
Endurnýjun á lögnum í eldra húsnæði, hvort sem um er að ræða einstakar lagnir eða heildarendurnýjun.
Fáðu verðhugmynd
Hringdu í 888 8094 eða sendu línu á smartlagnir@smartlagnir.is og lýstu verkinu. Við svörum eins fljótt og við getum.